Friday, April 19, 2013

Props

Nú leita ég logandi ljósi að aukahlutum eða props fyrir myndatökurnar mínar, þá sérstaklega finnst mér skemmtilegt að vera með svona props í barna- og ungbarnamyndatökum svo leit mín miðast augljóslega við það.

Hérna eru nokkrar myndir með því sem mig langar svakalega mikið í;



Gamlir kók eða pepsi kassar
Gamalt dúkkurúm, þarf ekki að
líta alveg eins út og þetta


Vagn
Gömul vog


Fata eða jafnvel enn betra er bali
Flottur rugguhestur, hentar líka
vel fyrir stærri börnin

Gamlar ferðatöskur, mega
vera allskonar á litinn

Aðrar hugmyndir að flottum aukahlutum eru;

Gamall dúkkuvagn
Gamalt koffort
Kassabíll
Sparkbíll úr tré (veit ekki hvort er til)
Önnur tréleikföng


Athugið: Myndir fengnar "að láni" af netinu.

Wednesday, April 3, 2013

Fyrstu krílin

Þá er ég að fara að skila af mér myndunum af fyrstu krílunum sem voru svo dugleg að leyfa mér að krumpast með sig og gera alls konar tilraunir.  Þau voru svo sannarlega yndislegustu tilraunadýr sem ég hef unnið með.  Þau voru dugleg að pissa og kúka á mig sem var bara fyndið... og þvottafjallið mitt jókst um helming á nokkrum dögum :-)

Algjör yndi og svo mikil bjútí þessir ungar sem heita Óskírður Eiríksson, Ingibjörg Sól og Andri Aaron.



















Vil enn og aftur þakka foreldrum þessara yndislegu unga fyrir að koma og leyfa mér að taka myndir af þeim.


Hlakka svo til að taka á móti fleiri krílum í apríl.